Ein mesta gleðin í ferlagreiningum, er að finna „fullkomna“ sóun. Endurtekin verk sem eru óþörf, án þess að nokkur hafi áttað sig á því.
Prófaðu að rýna í verkefnalistana og ferlana og spyrja þig, eða þitt fólk: Af hverju? Ítrekað, eins og forvitið barn varðandi hvern lið. Ef lokasvarið við spurninga-rununni er „bara“, eða „við höfum alltaf gert þetta svona“, þá gæti verið komið bingó!
Ég titla mig ráðgjafa. Réttnefni? Ekki endilega. Í mínum huga er nefnilega engin spurning að krefjandi spurningar og góðar þagnir færa viðmælandanum fleiri svör en að ryðja frá sér ráðum.
Ég hef mikla trú á „kössum“ og lotum til að afkasta, föstum venjum og nota sjálfur nokkra vel valda „kassa“ til að koma frá mér Þrennu vikunnar:
1 - Geymslu-kassinn minn er í Notion, þangað hendi ég inn hugmyndum, hvenær sem þær koma til mín yfir vikuna. Ágætis geymsla, í dag með 300 punktum sem bíða síns tíma 😅
2 - Klukkan 7 á þriðjudagsmorgni, að lokinni léttri æfingu, stíg ég inn í kassa sem bíður mín á dagatalinu, legg hendur á lyklaborðið og byrja að skrifa. Skrifa þar til ég er kominn með (helst) þrjár hugmyndir, en þó aldrei lengur en til klukkan 9, með einni pásu í kringum 8 til að kveðja fólkið mitt.
3 - Klukkan 9:00 á fimmtudagsmorgni loka ég síðasta kassanum þegar ég ýti á takkann og sendi frá mér Þrennu vikunnar. Klukkutímana á undan fínisera ég og bý til birtingar, alltaf í næði, alltaf eftir einhverja hreyfingu.
Með kassana á sínum stað í dagatalinu, tryggi ég að hausinn hlaupi ekki útundan sér. Hafi sinn ramma, svo þú fáir örugglega Þrennu vikunnar. Ætli megi ekki kalla mig ferkantaðan? Eða hálfgerðan pappakassa? 🙂
Skráðu þig á póstlistann til að fá gagnlega litla mola jafnt sem lengri pistla í pósthólfið.
© 2022 - 2023, Staka ehf.