Hefurðu komið inn í nýtísku fjós? Séð kýrnar „plataðar“ inn í básinn með mélkögglum? Þannig halda þær sinni rútínu, fara sinn hring í gegnum daginn. Við erum ekki mikið flóknari, a.m.k. ekki ég! Mánuðum saman hef ég reynt að festa inn mína eftirfarandi einföldu þriggja spurninga kvöld-rútínu með misjöfnum árangri:
Nema hvað, eftir alla mína innri baráttu hef ég loks fundið ráðið! Blað bíður mín innan á tannbursta-skápnum. Ég leyfi mér að haka við þegar kvöld-rútínan er afgreidd, ekki fyrr! Á básnum sem ég heimsæki á hverju kvöldi. Nú held ég glaður mínum hring í gegnum daginn, muuuu betri maður en áður!
Ferðu í jarðaför með kveikt á farsíma og öllum hringingum og tilkynningum? Leikhús? Atvinnuviðtal? Einkastund með uppáhaldinu? Sölufund? Vinnufund með samstarfsmönnum? Mikilvæga vinnulotu með sjálfum þér? Í sumarfríið? Yfir allan daginn í vinnunni? Að spila með börnum, vinum? Heima utan vinnu? Hvar dregur þú mörkin? Af hverju? Bókar þú tíma án síma? Ekki láta truflunina vera tilviljun! Þitt er valið!
Mannskepnan er án efa færust af skepnum jarðar í að ímynda sér framtíðina. Þessi geta leggur grunninn að margvíslegum efasemdum, kvíða og jafnvel hræðslu við að taka af skarið. Hræðslu við að gera nýja hluti, koma á nýjum venjum, breyta rútínum. Sem er mögulega það sem við ættum að hræðast mest! Að taka ekki af skarið, bíða einn dag enn með að byggja upp nýjar venjur og rútínur, leggja á ný mið, undirbúa okkar björtu framtíð!
Skráðu þig á póstlistann til að fá gagnlega litla mola jafnt sem lengri pistla í pósthólfið.
© 2022 - 2023, Staka ehf.