freyr@freyr.is
+354 663 8555

Þögnin, næðið og tilgangurinn

Ráðgjöf er fallegt íslenskt orð. Að gefa ráð. Þó erum við ráðgjafar ekki endilega þekktastir fyrir gjafmildi okkar þegar kemur að ráðum, heldur mögulega frekar lipurð okkar í að skrifa reikninga fyrir ráðleggingarnar. En mig langar sannarlega að standa undir nafni og gefa þér mín allra bestu ráð.

Mig langar að stinga saman nokkrum stefjum sem ég nota til að temja sjálfan mig, enginn endanlegur sannleikur, heldur aðferð sem ég beiti og líður vel með. Þessi pistill er upphafið að pistlaröð sem ég veit ekki enn hvernig endar en ég kalla nú: ,,Besta(ða) útgáfan af sjálfum þér.”

Þögnin, næðið og tilgangurinn

Valgeir Guðjónsson spurði í texta sínum, mögulega meira í gríni en alvöru: ,,Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi? […] Hver er ég? Hvar endar alheimurinn? Skyldi’ […] hann enda inni í mér?” Hver sem hugsun Valgeirs var þykir mér fá stef meira viðeigandi sem upphafsstef.

Hefur þú raunverulega tekið þér stund í næði til að velta fyrir þér kjarna þínum og tilgangi? Hverju þú vilt ná fram? Þar til þinn tilgangur er ljós er ég í sömu stöðu og ráðgjafi Lísu í Undralandi, kötturinn, áður en Lísa vissi hvert hún væri að fara. Áður en ljóst er hvert þú stefnir þá skiptir minna máli í hvaða átt þínir fætur feta.

Þögnin eða næðið sem þú þarft til að hugsa um þinn tilgang, hoppar ekki upp í fang þitt óumbeðið. Hvort sem þú finnur þína stund í kyrrð snemma morguns, á hjóli, fjallstindi eða á bekk í fjölmenni þá eru miklar líkur á að þú þurfir að hafa fyrir því. Það er nefnilega miklu léttara að fljóta með straumnum og taka við áreitinu, fylgja öðrum. Það kostar orku og áræði að taka um stýrið, taka ábyrgð, útiloka áreitið og líta sér nær, leiða sjálfan sig og aðra.

Mín leið er að bóka tíma með sjálfum mér. Ég á bókað stefnumót með sjálfum mér einu sinni í mánuði. Snemma morguns meðan aðrir sofa fer ég yfir minn tilgang í næði.

Í upphafi velti ég fyrir mér hlutunum án nokkurs texta. Síðar fann ég mér blað og skrifaði nokkrar línur. Nú er blaðið fullt. Þetta gæti ég kallað stefnumótunarskjal fyrir sjálfan mig. Ég les yfir skjalið og ítra mánaðarlega, breyti því og reyni að bæta, tek nýtt mið. Ég leik mér að því horfa á sjálfan mig og heiminn með augum fugls sem flýgur. Stundum hendi ég inn spurningum eins og, hvað ef ég get allt? Hvað ef það eru engar takmarkanir? Hvað þá? Eða hvernig get ég tryggt að ég skipti engu máli? Fjarlægt sjálfan mig út úr jöfnunni, hvað þá?

Aðferðirnar til að finna sig og sinn tilgang eru óteljandi margar, hvaða nálgun þú velur er aukaatriði. Í mínum huga er fátt mikilvægara en að þú takir með vilja þessa ábyrgð á sjálfum sér. Með þessari reglulegu hugarleikfimi tel ég mig nú þokkalega undirbúinn ef ég skyldi rekast á köttinn á förnum vegi.

Deila pistli

Aðrir pistlar

freyr@freyr.is
+354 663 8555